Þetta kom eins og sprengja

Fréttin af afsögn Sigursteins R. Mássonar fyrrverandi formanns ÖBÍ kom eins og sprengja hér í Hátúninu. Við komum öll af fjöllum og vissum ekki hvar á okkur stóð veðrið. Þessi staðreynd segir okkur ýmislegt um tengsl stjórnar ÖBÍ við umbjóðendur sína öryrkjanna sjálfa. Einhvern tíma hefur einhver verið sakaður um að sitja í fílabeinsturni. Lengi hef ég haft það á tilfinningunni að ÖBÍ væri eins og ríki í ríkinu. Það á engin öryrki í landinu beina aðild að ÖBÍ heldur eiga ýmis félög fatlaðra beina aðild og má því segja vegurinn til grasrótarinnar sé lengri en gengur og gerist í almennum félögum. Mér finnst etfirsjá af Sigursteini og Hafdísi, held að þau séu búinn að vera dugleg.
mbl.is Sigursteinn segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tek undir með þér,, tel það vera mjög slæmt. Sigursteinn er búin að vera áberandi sem formaður ÖBI, og mjög duglegur,að mínu mati en ,,, það var kannski óþolandi fyrir þá sem vildu ná völdum nú???

Sigríður Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband